Þórsarar unnu afar mikilvægan sigur á Selfossi í botnslag Olísdeildar karla í handknattleik í Sethöllinni á Selfossi í dag, 35:33. Með sigrinum fór Þór upp um tvö sæti í deildinni, í 9. sæti, og ýtti Selfossi og Stjörnunni þar með niður um eitt sæti. Stjarnan situr nú í 11. og næst neðsta sæti með 10 stig, einu stigi á eftir Selfossi og Þór.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Þór hefur þar með unnið Selfossliðið í tvígang á leiktíðinni sem getur reynst dýrmætt þegar upp verður staðið og liðin enda með jafn mörg stig.
Þrjár umferðir eru eftir í Olísdeild karla auk leiks KA og ÍBV sem fram fer á Akureyri á morgun. Úrslit þess leiks hafa engin áhrif á stöðu neðstu liðanna.

Fyrri hálfleikur var hraður og spennandi í Sethöllinni í dag. Áherslan var á sóknarleikinn á kostnað markvörslu og varnar. Staðan var jöfn þegar fyrri hálfleikur var að baki, 17:17.
Þórsarar tóku frumkvæðið fljótlega í síðari hálfleik og héldu tveggja til þriggja marka forskoti allt til loka. Sigurinn Þórsara var sanngjarn og þeim afar kærkominn eftir misjafna leiki upp á síðkastið. Reynslumenn báru leikinn uppi sem reyndist afar mikilvægt þegar á hólminn var komið.
Mörk Selfoss: Hannes Höskuldsson 11/7, Sölvi Svavarsson 6, Tryggvi Sigurberg Traustason 6, Guðjón Baldur Ómarsson 3, Anton Breki Hjaltason 2, Gunnar Kári Bragason 2, Jason Dagur Þórisson 2, Valdimar Örn Ingvarsson 1.
Varin skot: Alexander Hrafnkelsson, 17,9% – Philipp Seidemann 4, 25%.
Mörk Þórs: Hafþór Már Vignisson 9, Oddur Gretarsson 7/3, Brynjar Hólm Grétarsson 6, Þórður Tandri Ágústsson 4, Hákon Ingi Halldórsson 3, Halldór Kristinn Harðarson 2, Þormar Sigurðsson 2, Arnór Þorri Þorsteinsson 1, Kári Kristján Kristjánsson 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 9, 22% – Tristan Ylur Guðjónsson 0.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.




