- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þorsteinn Leó markahæstur og Porto fór áfram

- Auglýsing -

Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði sex mörk og var markahæstur þegar Porto lagði Granollers öðru sinni á einni viku í 16-liða úrslitum riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik, 34:33, í hnífjöfnum leik í Porto í kvöld. Þorsteinn og félagar mæta Skanderborg í Danmörku í fjórðu og síðustu umferð riðlakeppninnar eftir viku. Úrslit leiksins geta skorið úr um hvort liðið hreppir efsta sæti riðilsins og hleypur yfir fyrstu umferð útsláttarkeppninnar og fer þess í stað beint í átta liða úrslit.

Granollers er úr leik

Granollers er úr leik eftir tapið í kvöld. Liðið á ekki lengur möguleika á sæti í útsláttarkeppninni sem er nokkuð áfall en Granollers situr í öðru sæti spænsku 1. deildarinnar. Elverum sækir Granollers heim eftir viku.

Óðinn Þór markahæstur

Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen töpuðu fyrir Hannover-Burgdorf, 31:27, í Hannover í kvöld í riðli fjögur. Óðinn Þór var markahæstur með níu mörk.

Kadetten þarf helst stig úr viðureign sinni við danska liðið Fredercia í lokaumferðinni til þess að eiga víst sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. Alltént má svissneska meistaraliðið ekki tapa með meira en tveggja marka mun í viðureigninni sem fram fer í Schaffhausen.

Heiðmar og félagar í 8-liða úrslit

Hannover-Burgdorf, með Heiðmar Felixson sem aðstoðarþjálfara, situr í efsta sæti riðilsins og hefur þar með tryggt sér sæti í átta liða úrslitum hvernig sem gengur gegn RK Nexe í Króatíu eftir viku.

Úrslitaleikur hjá Stiven

Hjá Stiven Tobar Valencia og samherjum í Benfica bíður úrslitaleikur við sænska liðið IFK Kristianstad um sæti í útsláttarkeppninni. Benfica tapaði fyrir Vardar í Skopje í kvöld, 33:27. Stiven Tobar skoraði fjögur mörk.

Benfica vann fyrri viðureignina við IFK sem fram fór í Svíþjóð, 38:34.

  • Úrslit kvöldsins í Evrópudeildinni og staðan í riðlunum er í greininni hér fyrir neðan.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -