- Auglýsing -
Áfram heldur sigurganga Ísaks Steinssonar markvarðar og samherja hans í Drammen í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Í kvöld unnu þeir Follo á heimavelli í þriðju umferð deildarinnar, 28:22.
Drammen er þar með efst í deildinni með sex stig en er reyndar eina liðið ásamt Follo sem lokið hefur þremur viðureignum.
Ísak var í marki Drammen nær allan leikinn. Hann varði 10 skot, 31%. Þar af varði Ísak eitt vítakast. Annar hálf íslenskur leikmaður Drammen-liðsins, Viktor Petersen Norberg, skoraði fimm mörk.
Follo var marki yfir í hálfleik, 12:11, en varð að gefa eftir þegar kom fram í síðari hálfleik og sætta sig að lokum við að tapa viðureigninni. Follo hefur unnið einn leik en tapað tveimur.
- Auglýsing -