Landslið Íslands í handknattleik, skipað leikmönnum 17 ára og í yngri í karlaflokki, tapaði síðasta leik sínum á Nordic Open-mótinu sem hófst í Færeyjum á föstudag og lýkur í dag. Þýska landsliðið reyndist ofjarl íslenska liðsins í morgun þegar leikið var í þjóðarhöll Færeyinga, Við Tjarnir. Lokatölur, 28:25, fyrir Þýskalandi. Staðan var jöfn að loknum fyrri hálfleik, 12:12.
Þjóðverjar voru með yfirhöndina allan síðari hálfleikinn og náðu þeir hvað eftir annað fimm marka forskoti um og eftir miðjan síðari hálfleik.
Með sigrinum tryggði þýska landsliðið sér sigur á mótinu. Annað sætið kemur í hlut íslenska landsliðsins.
Íslensku piltarnir unnu Færeyinga á föstudag, 29:28, og Sviss í gær, 34:30.
Þjóðverjar unnu Færeyinga í gær, 26:21, en töpuðu fyrir Sviss, 28:27, á föstudag.
Þátttakan í mótinu í Færeyjum er kærkominn undirbúningur fyrir þátttöku íslenska liðsins á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í í Norður Makedóníu 20.- 26. júlí.
Mörk Íslands: Anton Frans Sigurðsson 7, Freyr Aronsson 5, Bjarki Snorrason 4, Kristófer Tómas Gíslason 2, Ragnar Hilmarsson 2, Alex Unnar Hallgrímsson 1, Gunnar Róbertsson 1, Kári Steinn Guðmundsson 1, Patrekur Smári Arnarsson 1, Matthías Dagur Þorsteinsson 1.
Varin skot: Jóhannes Andri Hannesson 4, Sigurmundur Gísli Unnarsson 2.