- Auglýsing -
Handknattleiksdeild Vals hefur framlengt samninga við þrjá efnilega leikmenn. Nýju samningarnir eru til tveggja ára, segir í tilkynningu Vals.
Leikmennirnir þrír eru:
- Dagur Leó Fannarsson hefur leikið stórt hlutverk í miðju varnarinnar í vetur ásamt því að hafa brugðið sér á miðju eða í skyttu öðru hvoru í sókninni með góðum árangri.
- Daníel Montoro, sem er örvhentur hornamaður, hefur leikið afar vel og skorað mörg mörk í öllum regnbogans litum, jafnt úr horni sem og hraðaupphlaupum.
- Jens Sigurðarson hefur komið sterkur inn í vetur og nýtt sín tækifæri vel í markinu ásamt því að mynda sterkt teymi með markvörðum liðsins.
- Auglýsing -




