Meistaraskjöldur 1. deildar karla í Þýskalandi er kominn í leitirnar, fjórum mánuðum eftir að honum var stolið af skrifstofu Füchse Berlín, ríkjandi Þýskalandsmeistara. Skjöldurinn fannst nýverið í kjallara félagsins, falinn á bak við pappakassa.
Um hið undarlegasta mál er að ræða þar sem tveir grunaðir voru handteknir í janúar. Unnu lögregluyfirvöld lengst af út frá þeirri kenningu að silfurskjöldurinn hafi verið bræddur niður í silfurstöng.
Sú kenning virtist ekki úr lausu lofti gripin því silfurstöng og bræðsluofn voru gerð upptæk þegar tvemenningarnir voru handteknir.
Hljómar fjarstæðukennt
Vegna þessa var reiknað með því að útbúa þyrfti nýjan skjöld. Voru slíkar fyrirætlanir komnar vel á veg en tókst að hætta við þær í tæka tíð eftir að Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse Berlín, tilkynnti lögreglunni að skjöldurinn væri kominn í leitirnar.
Talið er að tvemenningarnir hafi skilið skjöldinn eftir í kjallara félagsins og ætlað sér að ná aftur í hann síðar.
„Við getum öll glaðst yfir því að hægt sé að viðhalda hefðinni og að liðin sem hafa unnið titilinn og munu vinna hann geti haldið á skildinum á ný. Ég veit að þetta hljómar fjarstæðukennt en nákvæmlega svona gerðist þetta,“ sagði Hanning í samtali við Handball World.


