- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tinna Ósk áfram hjá HK

- Auglýsing -

Tinna Ósk Gunnarsdóttir, leikmaður HK, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Í tilkynningu frá handknattleiksdeild HK kemur ekki fram til hve langs tíma hún samdi.

Tinna Ósk verður þó að minnsta kosti áfram samningsbundin HK á næsta tímabili en hún hefur leikið vel með liðinu í Grill 66 deildinni á yfirstandandi tímabili.


Er hún markahæsti leikmaður HK á tímabilinu með 94 mörk í 18 leikjum. HK á í harðri toppbaráttu við Gróttu en bæði lið eru með 32 stig.

Grótta er í efsta sætinu með betri árangur í innbyrðis viðureignum liðanna tveggja á tímabilinu. Aðeins eru þrjár umferðir óleiknar í Grill 66 deildinni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -