Fram2 heldur áfram í humátt á eftir þremur efstu liðum Grill 66-deildar kvenna í handknattleik. Í gær vann Fram-liðið 12 marka sigur á Haukum2 í síðasta leik 7. umferðar deildarinnar í Lambhagahöllinni, 37:25. Fram hefur þar með 10 stig í fjórða sæti, þremur stigum á eftir KA/Þór sem trónir á toppnum.
Haukar eru í sjötta sæti með sex stig að loknum sjö leikjum.
Fram var aðeins marki yfir að loknum fyrri hálfleik í Lambhagahöllinni, 15:14. Í síðari hálfleik tók liðið öll völd og vann öruggan sigur án þess að Haukar fengu við neitt ráðið.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
Fram2 – Haukar2 37:25 (15:14).
Mörk Fram2: Sóldís Rós Ragnarsdóttir 12, Ingibjörg Eva Baldvinsdóttir 7, Elín Ása Bjarnadóttir 6, Sara Rún Gísladóttir 6, Sylvía Dröfn Stefánsdóttir 3, Valgerður Arnalds 2, Þóra Lind Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 26.
Mörk Hauka2: Ester Amíra Ægisdóttir 9, Brynja Eik Steinsdóttir 5, Katrín Inga Andradóttir 4, Bryndís Pálmadóttir 3, Hildur Sóley Káradóttir 2, Rósa Kristín Kemp 1, Roksana Jaros 1.
Varin skot: Elísa Helga Sigurðardóttir 20.