- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Töluvert hátt uppi og stoltur af stelpunum

- Auglýsing -

„Líðanin er góð. Ég er töluvert hátt uppi ennþá. Ég er hrikalega ánægður með stelpurnar og stoltur af þeim,“ sagði hæstánægður Arnar Pétursson, þjálfari íslenska landsliðsins, í samtali við handbolta.is eftir frækinn sigur liðsins á Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026 á Ásvöllum í kvöld.

„Mér líður vel. Þetta er búinn að vera erfiður undirbúningur, að missa lykilmenn út og svo þurftum við að bregðast við því með því að setja stelpur eins og Lovísu [Thompson] og Söru [Dögg Hjaltadóttur] í stöður sem þær eru kannski ekkert vanar að þurfa að leysa. Þær gera það hérna í landsleik, sem ég er stoltur af,“ hélt Arnar áfram.

Stórkostlegur sigur á Svartfellingum

Sáum möguleika í leiknum á HM

Ísland tapaði stórt fyrir Svartfjallalandi á HM 2025 í nóvember síðastliðnum og var liðið staðráðið í að gera betur í kvöld.

„Við svo sem sáum það í þessum leik úti á HM að þær eru sterkar, þær detta út í átta liða úrslitum á HM á móti Noregi, en við sáum það samt í leiknum okkar á móti þeim að það voru alveg möguleikar. Það voru alveg atriði í okkar leik sem við hefðum getað gert mikið mikið betur.

Við vorum svolítið linar þar. Við fundum það alveg strax að ef við náum okkar besta leik, ef við spilum okkar toppleik, þá er alveg hægt að gera góða hluti. Þannig tókst okkur að stilla þetta af og þannig voru stelpurnar staðráðnar í að mæta í þennan leik. Þær gerðu það,“ sagði hann.

Þroskamerki á liðinu

Arnari fannst sem upplegg hans hafi gefist vel í leiknum.

„Já, mér fannst það. Það sem ég var líka rosalega ánægður með í leiknum var að við lendum í ákveðnum vandræðum með níuna, stórskyttuna þeirra, og það var frábært að strax þar byrja þær sjálfar líka að leita lausna.


Þær eru að finna leiðir til að stoppa hana, sem er þroskamerki á liðinu. Mér fannst við ná að keyra vel á þær eins og við ætluðum okkur. Við eigum samt alveg aðeins inni þar. En heilt yfir sóknarlega vorum við alltaf að leita að færum og gerðum vel þar.“

Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja

A-landslið kvenna – fréttasíða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -