Íslendingalið Alpla Hard, sem Hannes Jón Jónsson þjálfar, vann sterkan útisigur á Aon Fivers, 28:26, í efstu deild karla í Austurríki í kvöld. Með sigrinum tyllti Alpla Hard sér á topp deildarinnar.
Alpla Hard er með 23 stig að loknum 19 leikjum en nokkur lið eiga enn eftir að spila í 19. umferð. Getur Linz, sem er í öðru sæti, farið aftur á toppinn með sigri og tvö önnur lið geta jafnað Alpla Hard að stigum.
Tumi Steinn Rúnarsson fór mikinn í liði Alpla Hard og var markahæstur allra í leiknum með sjö mörk, þar af eitt úr vítakasti. Tryggvi Garðar Jónsson komst ekki á blað hjá liðinu en var einu sinni vikið af leikvelli í tvær mínútur.
Jafnræðið í austurrísku deildinni er með nokkrum ólíkindum en til að mynda munar aðeins sex stigum á efsta liðinu og liðinu í níunda sæti.


