- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tumi Steinn rær á önnur mið

- Auglýsing -

Tumi Steinn Rúnarsson þarf að róa á ný mið í sumar þegar samningur hans við austurríska liðið Alpla Hard rennur sitt skeið á enda. Félagið tilkynnti þetta í morgun og segir m.a. að vel athuguðu máli hafi það orðið niðurstaðan að leiðir félagsins og Tuma Stein skilji í lok samningstímans.


Tumi Steinn gekk til liðs við Alpla Hard fyrir tveimur árum. Til félagsins kom hann að lokinni hálfs annars árs veru hjá þýska 2. deildarliðinu HSC 2000 Coburg. Hér á landi lék Tumi Steinn lengst af með Val en lék einnig með Aftureldingu við góðan orðstír.

Ekki kemur fram í tilkynningu Alpa Hard hvort Tumi Steinn hafi þegar samið við annað lið fyrir næsta tímabil.

Hannes Jón Jónsson þjálfari Alpla Hard síðustu fimm ár, hverfur einnig frá borði í sumar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -