Íslenska landsliðið í handknattleik karla tapaði fyrir sænska landsliðinu með tveggja marka mun, 35:33, í fyrri vináttuleik liðanna í N1-höllinni í kvöld. Staðan var jöfn í hálfleik, 19:19. Hálfgerður æfingaleikjabragur var á viðureigninni lengst af. Vonir standa til þess að betur gangi á laugardaginn þegar liðin reyna með sér á nýja leik í Kaplakrika. Uppselt er í þá viðureign, líkt og nánast mætti segja í kvöld þótt nokkuð hafi vantað upp á stemninguna og hefur verið líflegri á landsleikjum hér á landi.
Íslenska landsliðið byrjaði fremur rólega og skoraði til að mynda ekki fyrsta mark sitt fyrr en eftir fimm mínútur. Jafnt og þétt lifnaði þó yfir og þegar kom fram í miðjan hálfleik var sóknarleikurinn orðinn lipur en varnarleikurinn var slakur og náði sér raunar aldrei á flug. Þar af leiðandi var markvarslan ekki eins og best verður á kosið.
Síðari hálfleikur var nokkuð í takti við þann fyrri. Svíar voru skrefinu á undan. Mistökin voru heldur fleiri í sóknarleiknum sem kom í veg fyrir að það tækist að halda í við Svíana sem mest komust fjórum mörkum yfir, enda skoruðu þeir að vild og unnu sanngjarnan sigur.
Mörk Íslands: Elliði Snær Viðarsson 7, Orri Freyr Þorkelsson 6/3, Viggó Kristjánsson 5/5, Gísli Þorgeir Kristjánsson 3, Elvar Örn Jónsson 2, Sigvaldi Björn Guðjónsson 2, Stiven Tobar Valencia 2, Teitur Örn Einarsson 2, Haukur Þrastarson 1, Arnar Freyr Arnarsson 1, Óðinn Þór Ríkharðsson 1, Þorsteinn Leó Gunnarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 4, 17,4% – Viktor Gísli Hallgrímsson 4/1, 20%.
Mörk Svíþjóðar: Felix Claar 6, Axel Månsson 6, Albin Lagergren 3, Hampus Wanne 3, Nikola Roganovic 3, Erik Johansson 3, Jim Gottfridsson 2, Lukas Sandell 2, Felix Möller 2, Daniel Pettersson 2, Isak Persson 1, Felix Montebovi 1, Oscar Bergendahl 1.
Varin skot: Mikael Appelgren 9, 39,1% – Fabian Norstein 4/1, 17,4%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.








