Jökull Blöndal Björnsson og Patrekur Smári Arnarsson, ungir og efnilegir leikmenn ÍR, æfa um þessar mundir með þýska liðinu VfL Gummersbach, sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar.
Í tilkynningu á Facebook-síðu handknattleiksdeildar ÍR segir að Jökull og Patrekur Smári æfi með liðinu þessa vikuna. Gummersbach hefur átt frábært tímabil, hefur ekki tapað leik á árinu og er í fjórða sæti þýsku 1. deildarinnar.
Með liðinu leika landsliðsmennirnir Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson auk þess sem FH-ingurinn Garðar Ingi Sindrason gengur til liðs við félagið í sumar.
Jökull er 19 ára stórskytta og Patrekur Smári er 17 ára línumaður sem er einnig kröftugur varnarmaður. Ungt lið ÍR hafnaði í neðsta sæti Olísdeildarinnar í vetur og féll þar með niður í Grill 66 deildina.
„Ferðin verður án efa dýrmæt reynsla fyrir strákana enda eru þeir við æfinga hjá einu besta félagsliði heims á hápunkti tímabilsins,“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍR.



