U18 ára landslið kvenna mætir U18 ára landsliði Færeyinga í tvígang í vináttulandsleikjum hér á landi 4. og 5. júní. Vegna leikjanna hafa þjálfararnir Ágúst Þór Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson valið hóp til æfinga og síðan til þátttöku í leikjunum. Æfingar hefjast 29. maí og verða þær á höfuðborgarsvæðinu eins og leikirnir tveir.
Leikmannahópurinn:
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, HK.
Brynja Katrín Benediktsdóttir, Val.
Dagbjört Ýr Ólafsdóttir, ÍR.
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukum.
Elísa Elíasdóttir, ÍBV.
Embla Steindórsdóttir, HK.
Ethel Gyða Bjarnasen, HK.
Hildur Lilja Jónsdóttir, KA/Þór.
Inga Dís Jóhannsdóttir, HK.
Ísabella Schöbel Björnsdóttir, ÍR.
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Gróttu.
Lilja Ágústsdóttir, Lugi.
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukum.
Sara Dröfn Richardsdóttir, ÍBV.
Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Stjörnunni.
Thelma Melsteð Björgvinsdóttir, Haukum.
Tinna Sigurrós Traustadóttir, Selfossi.
Til vara:
Anna María Aðalsteinsdóttir, ÍR.
Berglind Gunnarsdóttir, Val.
Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir, Selfossi.
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR.
Sigurdís Sjöfn Freysdóttir, Fjölni/Fylki.
Þjálfarar:
Ágúst Þór Jóhannsson.
Árni Stefán Guðjónsson.