- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tveir uppaldir taka við Stjörnunni

- Auglýsing -

Stjarnan hefur tilkynnt að Sverrir Eyjólfsson muni taka við þjálfun karlaliðsins að loknu yfirstandandi tímabili. Honum til aðstoðar sem spilandi aðstoðarþjálfari verður fyrirliðinn Tandri Már Konráðsson. Báðir eru þeir uppaldir Stjörnumenn.

Sverrir hefur verið aðstoðarþjálfari Hrannars Guðmundssonar, sem lætur af störfum eftir tímabilið.


„Það er sérstakt gleðiefni fyrir handknattleiksdeildina að fá tvo uppalda Garðbæinga og Stjörnumenn til að leiða liðið. Þeir þekkja menninguna og stoltið sem fylgir búningi félagsins og taka við keflinu með skýra sýn á áframhaldandi uppbyggingu.

Fram undan er spennandi tímabil og við hvetjum stuðningsmenn til að standa þétt við bakið á liðinu út tímabilið – stuðningur ykkar skiptir sköpum.

Á sama tíma og við bjóðum þessa herramenn velkomna þá þökkum við Hrannari Guðmundssyni kærlega fyrir síðustu 3 ár hjá félaginu. Við munum fylkjast á bak við hann og liðið í næstu leikjum!“ segir meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Stjörnunnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -