- Auglýsing -
Tvö varin í skot í röð hjá Viktori Gísla Hallgrímssyni landsliðsmarkverði og markverði danska liðsins GOG í leik gegn Eurofarm Pelister í annarri umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik voru bestu tilþrifin af fimm á lista Handknattleikssambands Evrópu sem tekinn var eftir leikina fjóra sem fram fóru fyrr í vikunni.
Viktor Gísli hafði ekki jafnað sig af flensu sem hafði hrjáð hann dagana á undan leiknum. Hann lét það ekki slá sig út af laginu við að sýna þessi glæsitilþrif sem eru í lokin á þessu mínútu langa myndskeiði sem sjá má hér fyrir neðan. GOG vann leikinn, 30:29.
- Auglýsing -