Tvö öflugustu landslið Evrópumótsins í handknattleik karla í janúar, Evrópumeistarar Danmerkur og silfurlið Þýskalands, mætast tvisvar í vináttuleikjum 15. og 17. maí. Fyrri leikurinn fer fram í Royal Arena í Kaupmannahöfn en sá síðari í Lanxess Arena í Köln þar sem til stendur að leika til úrslita á heimsmeistaramótinu snemma næsta árs.
Hvorki Danir né Þjóðverjar taka þátt í umspili HM. Þar af leiðandi þótti upplagt að landsliðið rifjaði upp kynnin frá því í úrslitaleik EM 1. febrúar sl. Danska landsliðið vann úrslitaleikinn með sjö marka mun, 34:27, og vann Evrópumeistaratitilinn eftir 14 ára bið.
Á sama tíma og Danir og Þjóðverjar reyna með sér verður íslenska landsliðið í Kaíró í Egyptalandi vegna tveggja leikja við Afríkumeistarana.
Íslenska landsliðið mætir Egyptum tvisvar ytra í maí
Fer ekki til Kaíró til þess að skíttapa



