Danska félagið Skjern Håndbold hefur samið við danska landsliðsmanninn Jacob Holm um að leika með liðinu frá næsta sumri. Holm, sem er tvöfaldur heimsmeistari með Danmörku, sleit barnsskónum hjá Skjern og heldur því aftur heim á leið.
Hann kemur frá franska stórliðinu PSG, þar sem Holm hefur leikið frá árinu 2023. Áður lék hann með Füchse Berlín í Þýskalandi og hóf meistaraflokksferilinn með Ribe-Esbjerg í heimalandinu.
Holm er þrítugur leikstjórnandi sem vann Evrópudeildina með Füchse Berlín árið 2023 og frönsku deildina árin 2024 og 2025.
Í samtali við heimasíðu Skjern kvaðst hann vilja ná árangri með uppeldisfélagi sínu. Skjern hefur komið töluvert á óvart í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu og er í öðru sæti á eftir stórliði Aalborg Håndbold.


