„Ég verð mætt aftur á völlinn áður en fólk nær að sakna mín of mikið,“ sagði Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals og íslenska landsliðsins í handknattleik, við handbolta.is fyrr í dag þegar forvitnast var um heilsufar hennar í kjölfar hálsmeiðsla sem hún varð fyrir undir lok viðureignar landsliða Íslands og Svartfjallalands á miðvikudaginn fyrir rúmri viku.
Ekki höfuðhögg!
Hafdís þvertekur fyrir að hafa fengið höfuðhögg eða heilahristing í leiknum en segir að um hálsmeiðsli eða hálshnykk hafi verið að ræða.
„Hálsmeiðsli eru bara týpískt vinnuslys hjá markvörðum og ég hef ekki miklar áhyggjur af þessu. Skynsemin ræður för að þessu sinni og teymið er nokkuð sátt við stöðuna,“ sagði Hafdís enn fremur sem tekur einn dag fyrir í einu eins stalla hennar í landsliðinu, Katrín Tinna Jensdóttir, sem er á batavegi eftir höfuðhögg í áðurnefndum leik.
„Ég er með hálsmeiðsli en fékk ekki heilahristing. Ég hef ekki fengið heilahristing í langan tíma,“ sagði Hafdís Renötudóttir markvörður við handbolta.is í dag.




