Eftir tap fyrir Slóveníu í upphafsleiknum á Evrópumeistaramóti 19 ára landsliða í Króatíu liggja leikmenn íslenska landsliðsins og þjálfarar undir feldi þar sem lagt er á ráðin fyrir viðureignina í dag gegn Ítölum. Ítalir komu Serbum í opna skjöldu í gær með þeim afleiðingum að þeir unnu viðureign þjóðanna með tveggja marka mun, 28:26.
Íslenska liðið ætlar sér ekkert annað en sigur í leiknum í dag enda er það markmið þess að komast í átta liða úrslit. Til þess verða helst tveir leikir í riðlinum að vinnast. Þriðji leikurinn fer fram á sunnudaginn, gegn Serbíu.
Viðureign Íslands og Ítalíu hefst klukkan 12.30 í dag og verður hægt að fylgjast með útsendingu án endurgjalds á ehftv.com.
- Auglýsing -