- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Umspilsleikir Spánar og Ísraels fara fram í Buenos Aires

- Auglýsing -

Báðir umspilsleikir Spánar og Ísraels um sæti á HM karla 2027 fara fram í Buenos Aires í Argentínu í maí, eins spánskt og það kann að koma fyrir sjónir. Handknattleikssambönd þjóðanna hafa komist að þessu samkomulagi. Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur lagt blessun sína yfir ákvörðunina enda fer undankeppni Evrópuhluta fram undir hatti EHF sem mun sjá m.a. um að skipta dómara og eftirlitsmanni á leikina.


Viðureignirnar tvær fara fram einhvern tímann á frá 13. til 17. maí. Samanlagður sigurvegari leikjanna tryggir sér þátttökurétt í lokakeppni HM sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári.

Enginn áhugi mun hafa verið fyrir hendi af hálfu spænska handknattleikssambandsins að taka á móti ísraelska landsliðinu á Spáni og enn síður að leika báða leikina í öðru Evrópulandi. Þar af leiðandi varð það lendingin að leika í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. Mjög eindregin andstaða er á Spáni við hernað Ísraels á Gasa og nú síðar í Beirút og Íran.


Lengi hefur legið fyrir að ekki leik Ísraelsmenn á heimavelli. Síðustu ár hafa ísraelsks landsliðið og félagslið leikið heimaleiki utan heimalandsins. Skemmst er að minnast þess þegar ísraelska landsliðið kom hingað til lands fyrir ári til tveggja leikja við íslenska landsliðið í umspili um sæti á HM kvenna.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -