Undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik hófst miðvikudaginn 6. nóvember 2024 og lýkur sunnudaginn 11. maí 2025. Leikið verður í átta fjögurra liða riðlum, í byrjun nóvember 2024, um miðjan mars 2025 og í fyrri hluta maí 2025. Tvö efstu lið hvers riðils tryggja sér þátttökurétt á EM 2026 sem fram fer í Danmörku, Noregi og í Svíþjóð frá 15. janúar til 1. febrúar. Einnig komast fjögur lið sem ná bestum árangri í þriðja sæti í lokakeppnina, alls landslið 20 þjóða.
Hér fyrir neðan eru úrslit leikjanna og leikdagar fyrstu tveggja umferðanna. Stöðu í hverjum riðli verður bætt við þegar fyrstu umferð verður lokið.
1. riðill:
Norður-Makedónía – Eistland 37:33 (20:20).
Slóvenía – Litáen 36:25 (17:15).
Eistland – Slóvenía, 10. nóvember.
Litáen – Norður-Makedónía, 10. nóvember.
2. riðill:
Svartfjallaland – Finnland 29:28 (16:15).
-Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoraði 2 mörk fyrir finnska landsliðið.
Ungverjaland – Slóvakía 37:32 (15:12).
Finnland – Ungverjaland, 10. nóvember.
Slóvakía – Svartfjallaland, 10. nóvember.
3. riðill:
Grikkland – Georgía 27:26 (12:13).
Ísland – Bosnía 32:26 (12:12).
Georgía – Ísland, 10. nóvember.
Bosnía – Grikkland, 10. nóvember.
4. riðill:
Serbía – Lettland 38:25 (16:10).
Spánn – Ítalía 31:30 (15:17).
Lettland – Spánn, 10. nóvember.
Ítalía – Serbía, 10. nóvember.
5. riðill:
Tékkland – Lúxemborg 23:17 (12:10).
Króatía – Belgía 30:23 (16:12).
-Dagur Sigurðsson er landsliðsþjálfari Króatíu.
Lúxemborg – Króatía, 9. nóvember.
Belgía – Tékkland, 10. nóvember.
6. riðill:
Færeyjar – Kósovó 32:21 (13:9).
Holland – Úkraína 40:39 (19:20).
Úkraína – Færeyjar, 10. nóvember.
Kósovó – Holland, 10. nóvember.
7. riðill:
Austurríki – Tyrkland 31:28 (17:13).
Þýskaland – Sviss 35:26 (21:13).
-Alfreð Gíslason er landsliðsþjálfari Þýskalands.
Tyrkland – Þýskaland, 10. nóvember.
Sviss – Austurríki, 10. nóvember.
8. riðill:
Pólland – Ísrael 32:32 (12:16).
Portúgal – Rúmenía 37:30 (12:16).
Rúmenía – Pólland, 10. nóvember.
Portúgal – Ísrael, 10. nóvember.