- Auglýsing -
Skarð er svo sannarlega fyrir skildi hjá ungverska landsliðinu í handknattleik á EM. Línumaðurinn sterki og stóri, Bence Bánhidi, verður ekki með vegna meiðsla í hné. Hann varð eftir heima þegar ungverska landsliðið lagði af stað til Kristianstad þar sem það mætir íslenska landsliðinu á þriðjudaginn.
Bánhidi er með öflugri línumönnum Evrópu og um leið sá besti í sinni stöðu í ungverska landsliðinu. Hann hefur reynst íslenska landsliðinu erfiður í gegnum tíðina.
Íslenska landsliðið mætir Ungverjum á þriðjudaginn í 3. og síðustu umferð riðlakeppni Evrópumótsins.
Bánhidi hefur einnig verið fyrirliði ungverska landsliðsins. Í hans stað verður Adrian Sipos fyrirliði og Patrik Ligetvári varafyrirliði.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -




