- Auglýsing -
Ungverski handknattleiksmaðurinn Barnabás Rea og handknattleiksdeild Stjörnunnar hafa komist að samkomulagi um slit á samningi hans við félagið, bæði sem leikmaður og aðstoðarþjálfari yngri flokka.
Rea gekk til liðs við Stjörnuna fyrir núverandi tímabil á láni frá ungverska stórliðinu Pick Szeged.
Rea skoraði 14 mörk í 12 leikjum með Stjörnunni í Olísdeild karla.
- Auglýsing -





