Evrópumeistarar síðasta árs, Győri Audi ETO, leikur til úrslita í Meistaradeild kvenna á morgun. Győri vann danska meistaraliðið Esbjerg naumlega, 29:28, í fyrri undanúrslitaleiknum MVM Dome í Búdapest í dag. Þetta verður í áttunda sinn sem Győri leikur til úrslita síðan núverandi fyrirkomulag með úrslitahelgi var tekið upp vorið 2014.
Esbjerg, sem tekur þátt í úrslitahelginni í fjórða sinn, verður að sætta sig við að missa af úrslitaleiknum í enn eitt skiptið en liðið hefur aldrei leikið til úrslita.
Síðar í dag eigast Metz og Odense Håndbold við í síðari undanúrslitaleiknum.

Dione Housheer kom Győri tveimur mörkum yfir þegar 90 sekúndur voru til leiksloka, 29:27. Leikmenn Esbjerg lögðu allt í sölurnar undir lokin en tókst aðeins að skora eitt mark sem dugði skammt til þess að ná í framlengingu.
Mörk Győri: Dione Housheer 7, Estelle Veronique Nze Minko 5, Kari Brattset Dale 4, Eun Hee Ryu 4, Bruna de Paula 3, Kristina Jørgensen 2, Csenge Réka Fodor 2, Emilie Margrethe Hovden 2.
Varin skot: Hatadou Sako 5, 26,3% – Sandra Toft 3, 17,6%.
Mörk Esbjerg: Henny Reistad 7, Live Rushfeldt Deila 4, Judith van der Helm 4, Kaja Kamp 3, Sanna Solberg-Isaksen 3, Elin Hansson 2, Mia Emmenegger 2, Michala Møller 1, Line Haugstad 1, Merel Freriks 1.
Varin skot: Anna Kristensen 6, 27,2% – Amalie Milling 3, 18,7%.