Stúlkurnar í U16 ára landsliðinu höfnuðu í 13. sæti á Opna Evrópumótinu í handknattleik í Gautaborg en þær léku sinn síðasta leik í morgun. Þær unnu þá finnska landsliðið með eins marks mun, 24:23, eftir að hafa verið marki undir í hálfleik, 14:13.
Íslenska liðið varð þar með efst þeirra liða sem léku um 13. til 17. sæti mótsins, stigi á undan færeyska landsliðinu sem vann Eistland í morgun, 30:17.
Mörk Íslands: Dagmar Guðrún Pálsdóttir 12, Ágústa Rún Jónsdóttir 4, Lydía Gunnþórsdóttir 3, Arna Karitas Eiríksdóttir 2, Kristbjörg Eiríksdóttir 1, Guðrún Hekla Traustadóttir 1, Eva Pálsdóttir 1.
Markvarsla:
Varin skot: Ingunn María Brynjarsdóttir 15, 39%.
- Auglýsing -