- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Unnu fyrsta stigið í Evrópudeildinni í Nykøbing

- Auglýsing -

Þýska handknattleiksliðið Blomberg-Lippe, sem landsliðskonurnar Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir leika með, vann sitt fyrsta stig í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld með jafntefli, 30:30, við danska liðið Nykøbing Falster Håndbold. Leikið var í Nykøbing á Falstri. Þýska landsliðskonan Nieke Kühne jafnaði metin fyrir Blomberg-Lippe undir leikslok í jöfnum og spennandi leik. Staðan var jöfn 16:16.

Tveggja marka munur

Andrea kom Blomberg-Lippe tveimur mörkum yfir, 29:27, þegar fjórar mínútur voru til leiksloka en leikmenn Nykøbing Falster Håndbold voru harðar í horn að taka og svöruðu með þremur mörkum í röð áður Kühne lánaðist að jafna.

Díana Dögg var næstmarkahæst hjá Blomberg-Lippe með fjögur mörk ásamt Elínu Rósu. Díana Dögg átti einnig fjórar stoðsendingar, vann tvö vítaköst og var með einn stolinn bolta.

Elín Rósa skoraði einnig fjögur mörk, gaf tvær stoðsendingar, var með fjögur sköpuð færi, einn stolinn bolta og náði einu frákasti.

Andrea skoraði eitt mark, átti eina stoðsendingu, eitt skapað færi, varði tvö skot í vörninni og var vikið einu sinni af leikvelli.

Hvort á sínum stað

Blomberg-Lippe er neðst í riðlinum með eitt stig en danska liðið er efst með sex stig eftir fjóra leiki.

Ungverska liðið MOL Esztergom hefur fjögur stig en á leik inni við Chambray Touraine sem fram fer á morgun í Ungverjalandi. Chambray hefur þrjú stig. Úrslit leiksins á morgun geta skipt miklu máli í keppninni um annað sætið en tvö lið komast áfram í átta liða úrslit.

Blomberg-Lippe sækir Chambray Touraine heim eftir viku og lýkur riðlakeppninni með heimaleik við MOL Esztergom á heimavelli 22. febrúar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -