- Auglýsing -
Unnur Ómarsdóttir er barnshafandi og tekur þar af leiðandi ekki þátt í fleiri leikjum með nýliðum KA/Þórs í Olísdeildinni. Tíðindin staðfestir landsliðskonan fyrrverandi við Handkastið.
Unnur hefur tekið þátt í 14 leikjum KA/Þórs í Olísdeildinni í vetur en hefur ekki verið með í síðustu leikjum. M.a. sat hún á áhorfendapöllunum aftar fyrir varamannabekk KA/Þórs í undanúrslitaleik liðsins gegn Val í síðustu viku.
Unnur og maður hennar, Einar Rafn Eiðsson leikmaður og aðstoðarþjálfari KA, eiga fyrir tvö börn.
Unnur segist ekki útiloka neitt varðandi hugsanlega endurkomu á handboltavöllinn þegar fram líða stundir.
- Auglýsing -



