- Auglýsing -
Úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik, 8-liða úrslit, hefst í kvöld. Leikmenn ÍBV og KA ríða á vaðið í Vestmannaeyjum klukkan 18. Hálfum öðrum tíma síðar mætast Valur og HK í N1-höllinni á Hlíðarenda.
Hægt er að fylgjast með leikjum kvöldsins gegnum HBStatz hér fyrir neðan:
ÍBV – KA, kl. 18, (11:13, hálfleikur) – HBStatz, textalýsing.
Valur – HK, kl. 19.30 – HBStatz, textalýsing.
Annað kvöld eiga við Haukar og Afturelding klukkan 19 og hálftíma síðar reyna FH og Fram með sér.
- Auglýsing -



