-Auglýsing-

Úrslitaleikur hjá Arnóri í lokaumferðinni

- Auglýsing -

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fimm mörk og leikmenn Amo HK risu upp á afturfæturna og lögðu HF Karlskrona, 39:34, í Karlskrona í gærkvöld í næstsíðustu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. Sigurinn nægir Amo-ingum ekki til þess að komast áfram í átta liða úrslit um sænska meistaratitilinn. Liðið situr fast í tíunda sæti.

HF Karlskrona verður á hinn bóginn að vinna viðureign sína í síðustu umferð deildarinnar og treysta á hagstæð úrslit í annarri viðureign til þess að ná inn í úrslitakeppni átta efstu liða.


Arnór Viðarsson lék einkar vel fyrir HF Karlskrona í tapleiknum og skoraði m.a. átta mörk auk þess að láta til sín taka í vörninni. HF Karlskrona situr í níunda sæti með sama stigafjölda og Önnereds sem er í áttunda sæti.

Í síðustu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar á miðvikudagskvöld mætir HF Karlskrona liðsmönnum Guif frá Eskilstuna. Önnereds fær IK Sävehof í heimsókn.


Staðan í sænsku úrvalsdeildinni í karlaflokki:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -