- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Úrslitaleikur hjá kvennalandsliðinu á sunnudaginn

- Auglýsing -

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna fer í úrslitaleik við Portúgal á sunnudaginn um mögulegt sæti í lokakeppni Evrópumóts. Þetta varð ljóst í kvöld eftir að Svartfellingar unnu Portúgala, 34:26, í Matosinhos í Portúgal í kvöld.


Íslenska landsliðið þarf að vinna viðureignina við portúgalska liðið á Ásvöllum á sunnudaginn með a.m.k. tveggja marka mun. Þar með verða liðin jöfn að stigum, með fjögur stig hvort og íslenska liðið með hagstæðari stöðu í innbyrðis viðureignum. Portúgal vann Ísland í október í Matosinhos með eins marks mun.

Sigurinn færði Svartfellingum farseðil í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í desember. Þeir voru með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda. Ljóst var að leikmenn ætluðu ekki að taka áhættu og treysta á sigur á Færeyingum í lokaumferðinni á sunnudaginn til þess að tryggja sér keppnisrétt á EM.

Einnig er ljóst eftir þessi úrslit að Færeyingar eru öruggir áfram í lokakeppnina hvernig sem þeim gengur í Podgorica á sunnudaginn. Þetta verður þriðja lokakeppnin í röð hjá færeyska kvennalandsliðinu sem hefur sótt mjög í sig veðrið á undanförnum þremur til fjórum árum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -