Jóhannes Berg Andrason átti fínan leik með TTH Holstebro þegar liðsmenn Arnórs Atlasonar hófu leik á ný í dönsku úrvalsdeildinnni í handknattleik í dag eftir langt hlé. Jóhannes Berg skoraði fjögur mörk og var með fullkomna skotnýtingu í fimm marka sigri Holstebro á botnliðinu, Grindsted, 33:28, á heimavelli Grindsted.
TTH Holstebro er í sjötta sæti deildarinnar með 20 stig eftir 19 leiki. Aalborg Håndbold er sem fyrr efst og taplaust með 38 stig. Aalborg vann SønderjyskE, 35:25, á heimavelli í dag.
Jón Ísak með fjögur
Í næstefstu deild danska handknattleiksins skoraði fyrrverandi leikmaður TTH Holstebro, Jón Ísak Halldórsson, fjögur mörk fyrir Lemvig-Thyborøn Håndbold í fjögurra marka sigri á Give Håndboldklub, 37:33, á útivelli. Lemvig-Thyborøn Håndbold er í 7. sæti með 21 stig eftir 19 leiki.
Nálgast úrvalsdeildina
Katla María Magnúsdóttir skoraði eitt mark úr vítakasti í eins marks sigri Holstebro Håndbold á Rødovre HK í hörkuleik í Holstebro, 25:24. Holstebro er efst með 30 stig eftir 16 leiki. Rødovre HK er í öðru sæti, 10 stigum á eftir en hefur lagt 15 leiki af 22 að baki.
Holstebro Håndbold-liðið er komið með annan fótinn upp í úrvalsdeildina á næstu leiktíð.



