- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Útlit er fyrir ótrúlega mörg afföll hjá ÍBV í síðasta leiknum

- Auglýsing -

Útlit er fyrir ótrúlega mörg afföll í leikmannahópi karlaliðs ÍBV annað kvöld í lokaumferð Olísdeildar karla. ÍBV tekur þá á móti toppliði Vals í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum klukkan 19.30. Í raun má segja að það sé hreint með ólíkindum að ÍBV takist að ná saman í lið í leiknum, svo margir leikmenn eru frá. Eyjamenn þekkja það hins vegar vel að maður kemur í manns stað. Þegar kallað er út aðgerð þá mæta allir sem vettlingi geta valdið og standa meðan stætt er.

Ekki færri en 10 leikmenn

Eftir því sem handbolti.is segir verður Dagur Arnarsson ekki með vegna tognunar í læri. Andri Erlingsson meiddist á ökkla í leik við Fram á mánudagskvöld og verður heldur ekki með annað kvöld. Haukur Leó Magnússon fékk höfuðhögg í fyrrgreindri viðureign við Fram og er úr leik. Ísak Rafnsson er meiddur og sömu sögu er að segja um markvörðinn Petar Jokanovic sem læstist í baki og var af þeim sökum ekki með í leiknum við Fram. Hann verður tæplega orðinn fullfrískur annað kvöld.

Hákon Daði Styrmisson á von á að fyrsta barn hans komi í heiminn á hverri stundu.

Sigtryggur Daði Rúnarsson er meiddur og verður vafalaust ekki með annað kvöld.

Andrés Marel Sigurðsson, Jason Stefánsson og Jakob Ingi Stefánsson hafa verið lengi frá vegna langvarandi meiðsla. Jason sleit krossband síðasta sumar, rétt áður en 19 ára landsliðið tók þátt í HM í Egyptalandi. Jakob Ingi sleit krossband á æfingu í október.

Hörð barátta um sæti

ÍBV er í harðri baráttu við KA og Aftureldingu um fjórða sæti Olísdeildar og þar af leiðandi um heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem hefst 25. mars.

Valur trónir á toppnum fyrir síðustu umferðina, stigi á undan FH og tveimur stigum á eftir Haukum.

Leikir síðustu umferð fimmtudaginn 12. mars kl. 19.30:

Stjarnan – Fram.
HK – Haukar.
ÍBV – Valur.
Þór – KA.
Selfoss – Afturelding.
FH – ÍR.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -