Riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik lauk í gærkvöld. Tólf af 16 liðum halda áfram keppni. Fjögur þeirra fara beint í átta liða úrslit en átta taka þátt í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. Sigurlið útsláttarkeppninnar mæta galvösk í átta liða úrslit þeim fjórum liðum sem unnu riðlakeppnina sem lauk í gærkvöld.
Leikir útsláttarkeppni Evrópudeildar karla:
Skanderborg – Flensburg.
-Kristján Örn Kristjánsson, Donni, er leikmaður Skanderborg.
Montpellier – Elverum.
-Tryggvi Þórisson er leikmaður Elverum.
Fredericia HK – MT Melsungen.
-Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson leika með MT Melsungen.
IFK Kristianstad – RK Nexe.
-Einar Bragi Aðalsteinsson er leikmaður IFK Kristianstad.
- Leikirnir fara fram 31. mars og 7. apríl.
- Sigurliðin komast í átta liða úrslit.
- THW Kiel, FC Porto, HC Vardar 1961 og Hannover-Burgdorf bíða í átta liða úrslitum.
-Þorsteinn Leó Gunnarsson er leikmaður FC Porto.
-Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.
Raðað hefur verið niður í leiki 8-liða úrslita:
Kristianstad eða RK Nexe – THW Kiel.
Fredericia HK eða MT Melsungen – FC Porto.
Montpellier eða Elverum – HC Vardar 1961.
Skanderborg eða Flensburg – Hannover-Burgdorf.
- Fyrri leikir 8-liða úrslita eiga að fara fram 28. apríl og 5. maí.
- Úrslitahelgi Evrópudeildar verður 30. og 31. maí.


