- Auglýsing -
Hér fyrir neðan eru valdir kaflar úr undanúrslitaleikjum Barcelona og SC Magdeburg og Füchse Berlin og HBC Nantes sem fram fóru í gær í Lanxess-Arena.
Magdeburg vann, 31:30, eftir mikla spennu. Tim Hornke skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu eftir sendingu frá Gísla Þorgeiri Kristjánssyni.
Füchse Berlin vann stórsigur á Nantes, 34:24.
Füchse Berlin og SC Magdeburg, tvö efstu lið þýsku 1. deildarinnar á nýliðinni leiktíð, mætast í úrslitaleik klukkan 16 í dag.
- Auglýsing -