Eftir slæmt tap fyrir Haukum á fimmtudagskvöld komu leikmenn Vals eins og grenjandi ljón til leiks í Mosfellsbæ í dag og unnu Aftureldingarmenn með átta marka mun, 35:27. Valur var sex mörkum yfir í hálfleik í Myntkauphöllinni, 18:12. Sigurinn færði Val efsta sæti Olísdeildar karla á nýjan leik.
Afturelding tapaði hinsvegar öðrum leiknum í röð og virðist í lægð um þessar mundir.
Viðureignin var nokkuð jöfn fyrstu 15 til 20 mínúturnar áður en Valsliðið tók völdin. Varnarleikur og markvarsla Aftureldingar var ekki aldrei upp á það besta meðan annað var upp á teningnum hinum megin vallarins.
Arnór Snær Óskarsson var óstöðvandi og var einn þeirra leikmanna sem réru eins og fuglinn Fönix að þessu sinni eftir vonbrigðin á fimmtudaginn.
Valsmenn hertu tökin jafnt og þétt eftir því sem á leið síðari hálfleik. Forskot þeirra var drjúgt og Mosfellinga. Munurinn var orðinn níu mörk upp úr miðjum síðari hálfleik. Síðustu mínúturnar voru yngri leikmenn beggja liða orðnir áberandi á leikvellinum og ljóst að aðeins var þess beðið að leiktíminn liði.
Mörk Aftureldingar: Harri Halldórsson 7, Árni Bragi Eyjólfsson 5/1, Ævar Smári Gunnarsson 4, Kristján Ottó Hjálmsson 3, Oscar Sven Leithoff Lykke 2, Sveinur Ólafsson 2, Andri Freyr Friðriksson 1, Brynjar Búi Davíðsson 1, Ihor Kopyshynskyi 1, Leó Halldórsson 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 6, 19,4% – Sigurjón Bragi Atlason 0.
Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 13/8, Bjarni í Selvindi 5, Gunnar Róbertsson 4, Andri Finnsson 3, Þorgils Jón Svölu Baldursson 3, Allan Norðberg 2, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 2, Dagur Leó Fannarsson 2.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13/2, 32,5%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.


