- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Valsmenn eru í kjörstöðu eftir sigur í KA-heimilinu

- Auglýsing -

Valur stendur vel að vígi í undanúrslitarimmunni við KA eftir að hafa unnið viðureign liðanna í KA-heimilinu í kvöld, 33:30. Valur hefur þar með tvo vinninga gegn engum KA-liðsins og getur bundið enda á einvígið á heimavelli á mánudagskvöld. Valur var fimm mörkum yfir í hálfleik, 19:14.


Framan af fyrri hálfleik stefndi í að Valur ætlaði að vinna stórsigur eins og í fyrstu viðureigninni. Ekki stóð steinn yfir steini hjá KA og staðan var 12:5 Val í vil eftir 15 mínútur. KA-menn bitu í skjaldarrendur og minnkuðu muninn en Valsmenn misstu aðeins fram úr sér á síðustu mínútum.

KA-liðið hóf síðari hálfleik með áhlaupi sem heppnaðist. Úr varð stórskemmtilegur leikur. Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður var staðan jöfn, 22:22. Eftir það var nánast jafnt á öllum tölum, mikill hraði og skemmtun. Ágúst Elí Björgvinsson fór hamförum í marki KA. Síðast var staðan jöfn, 30:30, þremur mínútum fyrir leikslok. Valsmenn voru yfirvegaðri allra síðustu mínúturnar og fara þar með syngjandi í bæinn.

Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 8/4, Magnús Dagur Jónatansson 4, Dagur Gautason 4, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 4, Einar Birgir Stefánsson 4, Jens Bragi Bergþórsson 3, Arnór Ísak Haddsson 1, Ágúst Elí Björgvinsson 1, Logi Gautason 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 16/1, 35,6% – Bruno Bernat 0.

Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 10/6, Bjarni í Selvindi 5, Allan Norðberg 5, Gunnar Róbertsson 3, Andri Finnsson 2, Magnús Óli Magnússon 2, Þorgils Jón Svölu Baldursson 2, Björgvin Páll Gústavsson 1, Daníel Montoro 1, Daníel Örn Guðmundsson 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13/1, 31,7% – Jens Sigurðarson 0.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -