Deildarmeistarar Vals náðu að vinna HK eftir framlengingu í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld, 42:38. Staðan var jöfn, 31:31, eftir venjulegan leiktíma. Valur skoraði tvö síðustu mörkin og kreisti út framlengingu. Næsta viðureign liðanna fer fram í Kórnum á sunnudaginn. Hafist verður við leik klukkan 16. Takist Val að vinna á sunnudaginn tekur liðið sæti í undanúrslitum. Jafni HK metin verður oddaleikur í N1-höllinni á skírdag, 2. apríl.
- Valur var ívið sterkari í fyrri hálfleik og hafði eins marks forystu, 17:16, að loknum 30 mínútum.
- Um tíma stefndi í að Valsmenn ætluðu að gera út um leikinn snemma í síðari hálfleik. Þeir náðu þriggja marka forskoti, 20:17.
- HK svaraði með níu mörkum gegn einu og var með fimm marka forskot, 26:21, þegar liðlega 17 mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.
- HK var með þriggja marka forskot, 29:26, þegar 52 mínútur voru liðnar af leiktímanum.
- Arnór Snær Óskarsson jafnaði metin, 31:31, þegar tvær og hálf mínúta var eftir af 60 mínútna leik. Eftir tókst hvorugu liðinu að skora fyrr en komið var í framlengingu.
- HK var síðast yfir, 34:33, þegar tvær mínútur voru liðnar af framlengingu.
- Valur komst yfir, 39:36, þegar þrjár mínútur voru eftir af framlengingu.
- HK-menn voru ósáttir við dómgæsluna, ekki síst er hallaði á leiktímann.
- Valur – HK 42:38, (17:16), (31:31).
Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 12/1, Gunnar Róbertsson 7, Andri Finnsson 6, Bjarni í Selvindi 5, Þorgils Jón Svölu Baldursson 4, Allan Norðberg 3, Magnús Óli Magnússon 2, Daníel Montoro 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1, Dagur Leó Fannarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 11, 25% – Jens Sigurðarson 1, 16,7%.
Mörk HK: Hjörtur Ingi Halldórsson 8, Ágúst Guðmundsson 8, Andri Þór Helgason 6/4, Sigurður Jefferson Guarino 5, Haukur Ingi Hauksson 5, Örn Alexandersson 3, Orfeus Andreou 3.
Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 9, 18,4% – Jovan Kukobat 2/2, 50%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
- Næsti leikur liðanna verður á sunnudaginn í Kórnum. Flautað verður til leiks klukkan 16.



