Grétar Áki Andersen, þjálfari kvennaliðs ÍR, telur allar líkur á því að Valur reynist of stór biti fyrir KA/Þór að kyngja þegar liðin mætast í undanúrslitum Powerade-bikars kvenna í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum klukkan 20.15 í kvöld.
„Valskonur eru bara með besta lið landsins eða eitt af þeim. KA/Þór hékk vel í þeim um daginn og maður veit aldrei hvað Jonni [Jónatan Þór Magnússon þjálfari] gerir, hvort hann fari í sjö á sex eða ekki. Ég reikna með Valssigri,“ segir Grétar Áki í samtali við handbolta.is, beðinn um að rýna í leikinn.
Hörkuleikur sem gæti farið í framlengingu
Í átta liða úrslitum vann Valur öruggan tíu marka sigur á FH og KA/Þór vann þriggja marka sigur á Gróttu.
Púsl sem skipta Val máli
Er einhvern veikan blett að finna á Valsliðinu?
„Thea [Imani Sturludóttir] er ekki búin að vera mikið með í vetur. Er hún heil? Elísa [Elíasdóttir] er ekki búin að vera heil, Mariam [Eradze] var ekki með í seinasta leik. Þetta eru púsl sem skipta Val máli. Annars er Valur með hörkulið,“ segir hann.
Valur hefur unnið báða leiki liðanna í Olísdeildinni á tímabilinu og eiga þau eftir að mætast einu sinni til viðbótar í deildinni í næsta mánuði. Í báðum leikjum var KA/Þór vel inni í þeim áður en Valur sigldi svo fram úr.
„Maður er alltaf í einhverri þversögn en KA/Þór var í hörkuleik á móti Val um daginn og Valur rétt vann þær fyrir norðan. Það er allt í hendi en fyrir fram hugsar maður að Haukar – Fram verði mjög spennandi leikur en að síðan muni Valur fara þægilega inn í úrslit,“ segir Grétar Áki Andersen við handbolta.is.
- Miðasala er í fullum gangi á Stubbi.


