Valur varð í dag bikarmeistari kvenna í handknattleik eftir frábæran lokakafla í úrslitaleik við Hauka í Kuehne+Nagel höllinni, Ásvöllum, 23:19. Haukar skoruðu aðeins eitt mark á síðustu 15 mínútum leiksins á sama tíma og Valur skoraði níu mörk. Þetta er í tíunda sinn sem Valur verður bikarmeistari í handknattleik kvenna.
Það var með ólíkindum að sjá hvernig Haukar misstu tökin á leiknum sem þeir virtust hafa þegar Anton Rúnarsson þjálfari Vals tók leikhlé í stöðunni, 18:14, fyrir Hauka og 15 mínútur til leiksloka. Valsliðið bakkaði aftur á línu vörninni auk þess sem Thea Imani Sturludóttir mætti til leiks og lék lokakaflann.
Frábær varnarleikur Vals ásamt markvörslu Hafdísar Renötudóttur varð til þess að Haukum féll allur ketill í eld. Valur skoraði sjö mörk og komst yfir, 21:18. Örvæntingarfullar tilraunir Hauka í lokin komu of seint.

Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi þar sem landsliðsmarkverðirnir Hafdís Renötudóttir hjá Val og Sara Sif Helgadóttir hjá Haukum voru í aðalhlutverki. Þær lokuðu markinu á lögnum köflum með þeim afleiðingum að aðeins var skorað 21 mark. Haukar skoruðu tvö síðustu mörk hálfleiksins er markaþurrð var mínúturnar á undan. Staðan í hálfleik, 11:10.
Haukar byrjuðu síðari hálfleik vel og komust fjórum mörkum yfir en liðið virtist sigla beggja skauta byr þegar allt sigldi í strand.
Mörk Vals: Þórey Anna Ásgeirsdóttir 4/1, Arna Karitas Eiríksdóttir 4, Elísa Elíasdóttir 4, Lovísa Thompson 3, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 3, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 2, Thea Imani Sturludóttir 2, Hildur Björnsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 16/1, 45,7%.
Mörk Hauka: Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 5/1, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 4, Sara Marie Odden 3, Alexandra Líf Arnarsdóttir 2, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 2, Embla Steindórsdóttir 2, Inga Dís Jóhannsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 16/1, 41%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.


