Valur varð deildarmeistari í Olísdeild karla eftir öruggan sigur á vængbrotnu liði ÍBV í Vestmannaeyjum í kvöld, 34:28. Staðan var jöfn, 17:17, að loknum fyrri hálfleik, 17:17. Þegar kom fram yfir miðjan síðari hálfleik áttu leikmenn Vals meira inni en Eyjamenn.
Þrátt fyrir tapið þá hafnar ÍBV í fjórða sæti Olísdeildar með 27 stig eins og KA en vegna eins marks forskots í innbyrðis leikjum við KA kemur fjórða sætið í hlut ÍBV.
Valur mætir HK í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar sem hefst 25. mars.
ÍBV og KA eigast við í átta liða úrslitum og sem fyrr segir þá fær ÍBV heimaleikjaréttinn, þ.e. á heimaleik í fyrstu umferð og í oddaleik en vinna þarf tvær viðureignir í átta liða úrslitum.
Mörk ÍBV: Kristófer Ísak Bárðarson 8, Sveinn José Rivera 5, Elís Þór Aðalsteinsson 4, Daníel Þór Ingason 3, Nökkvi Snær Óðinsson 3, Anton Frans Sigurðsson 2, Ívar Bessi Viðarsson 2, Heimir Halldór Sigurjónsson 1.
Varin skot: Morgan Goði Garner 7/1, 22,6% – Sigurmundur Gísli Unnarsson 0.
Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 11/7, Gunnar Róbertsson 6, Andri Finnsson 4, Magnús Óli Magnússon 3, Allan Norðberg 2, Bjarni í Selvindi 2, Björgvin Páll Gústavsson 2, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 2, Daníel Montoro 1, Þorgils Jón Svölu Baldursson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 12/4, 32,4% – Jens Sigurðarson 0.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



