Valur lagði ÍBV með tveggja marka mun í skemmtilegri lokaviðureign í Olísdeild kvenna í handknattleik í N1-höllinni á Hlíðarenda í dag, 30:28, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 17:12. Leikurinn, sem átti að fara fram fyrir viku en var slegið á frest, markaði lokin á deildarkeppninni. Að honum loknum fékk Valsliðið deildarmeistarabikarinn afhentan. Liðið lýkur keppni með sex stiga forskot á ÍBV sem hafnaði í öðru sæti.
Valur var sterkari í fyrri hálfleik og hafði fimm marka forskot að honum loknum. Forskotið var ekki síst tilkomið vegna nokkurra mistaka ÍBV-liðsins í sóknarleiknum undir lok hálfleiksins.
Í byrjun síðari hálfleiks var útlit fyrir að Valur myndi vinna öruggan sigur. Liðið var fjórum mörkum yfir, 21:17, eftir 12 mínútur. Eyjaliðið, undir stjórn Söndru Erlingsdóttur, var ekki á þeim buxunum að leggja árar í bát. Þvert á móti. ÍBV jafnaði metin, 21:21, og komst marki yfir, 24:23, þegar níu mínútur voru til leiksloka.
Valsliðið var aftur á móti staðráðið í að taka við deildarmeistarabikarnum með sigurleik og sú varð raunin.
Anton Rúnarsson, sem tók við þjálfun Vals fyrir keppnistímabilið, hefur þar með unnið þrjá titla á sínu fyrsta starfsári og stefnir vafalaust á þann fjórða á næstu vikum. Athyglisverður árangur hjá þjálfara sem er að stiga sín fyrstu skref á þjálfarabrautinni.
Mörk Vals: Elísa Elíasdóttir 7, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 6, Lovísa Thompson 4, Sara Lind Fróðadóttir 4, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 3/3, Guðrún Hekla Traustadóttir 3, Lilja Ágústsdóttir 3.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 8/1, 26,7% – Elísabet Millý Elíasardóttir 2, 25%.
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 12/3, Birna Berg Haraldsdóttir 3, Klara Káradóttir 3, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 1, Ásdís Halla Hjarðar 1, Britney Emilie Florianne Cots 1, Lilja Kristín Svansdóttir 1.
Varin skot: Amalia Frøland 12/1, 28,6%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Lokastaðan í Olísdeild kvenna.


