- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Valur leikur tvisvar heima – Haukar fara til Cheb

Elín Rósa Magnúsdóttir, Val. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Íslands- og bikarmeistarar Vals í handknattleik kvenna leika báðar viðureignir sína við tékkneska meistaraliðið Slavía Prag í átta liða úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik hér á landi 22. og 23. febrúar. Samkomulag liggur fyrir milli félaganna og leikdagar og leiktímar staðfestir á heimasíðu Handknattleikssambands Evrópu.


Hitt íslenska liðið sem er í átta liða úrslitum Evrópubikarsins, Haukar, mætir Hazena Kynzvart frá Tékklandi. Fyrri leikurinn verður í Cheb í Tékklandi laugardaginn 15. febrúar kl. 15. Síðari viðureignin verður á Ásvöllum laugardaginn 22. febrúar kl. 16.30.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -