Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, vann öruggan sigur á landsliði Mexíkó, 41:24, í fyrri leik sínum í milliriðlakeppni heimsmeistaramótsins, meðal liða sem leika um sæti 17 til 32, í Katowice í Póllandi. Staðan var 16:8 þegar fyrri hálfleikur var að baki. Þar með varð ljóst að íslenska liðið hafnar einhver staðar á bilinu 17 til 24 þegar mótið verður gert upp.
Næsti leikur íslensku piltanna verður gegn landsliði Marokkó á miðvikudagsmorgun. Marokkóbúar unnu Norður Makedóníumenn, 30:26, í morgun.
Sigurliðið í viðureign Íslands og Marokkó á miðvikudaginn tekur þátt í krossspili um sæti 17 til 20 á fimmudaginn. Sama dag leikur tapliðið í krossspili um sæti 21 til 24.
Íslenska liðið var með yfirhöndina frá upphafi til enda gegn Mexíkóum í dag en sennilega eru um fyrsta eða með allra fyrstu viðureignum þjóðanna á handknattleiksvellinum. Eins og við mátti búast þá var um viðureign kattarins að músinni. Þrátt fyrir mörg sóknarmistök, ekki síst í fyrri hálfleik þá voru yfirburðir íslenska liðsins miklir.
Margir þeirra sem minna höfðu fengið að spreyta sig í íslenska liðinu á mótinu fengu tækifæri til þess að láta ljós sitt skína að þessu sinni.
Mörk Íslands: Sigurður Snær Sigurjónsson 8, Hans Jörgen Ólafsson 7, Eiður Rafn Valsson 6, Sigurður Páll Matthíasson 4, Andri Fannar Elísson 3, Bjarki Jóhannsson 3, Elmar Erlingsson 3/2, Birkir Snær Steinsson 2, Össur Haraldsson 2, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 2, Ívar Bessi Viðarsson 1.
Varin skot: Breki Hrafn Árnason 9/1, 27%.
Mörk Mexíkó: Jose Alfonso Flores Woolfolk 5, Enric Carreno Toral 3, Leonardo Daniel Ayala Gonzalez 3, Juan Humberto Anguiano Lopez 3, Manuel Rivas Zazueta 2, Osvaldo Pascual Maya Pedraza 2, Juan Pablo Maya Pedraza 2, David Gloria Hernanez 1, Hector Rafael Campos Altamirano 1, Ian Ramses Martinez Gutierrez 1, Bryan Maltos Cortinas 1.
Varin skot: Victor Enrique Salgado 4, 14% – David Fajardo Laureano 3, 33% – Santiago Roman Crabtree 1, 13%.
Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.