-Auglýsing-

„Var ógeðslega leiðinlegt að missa af janúar“

- Auglýsing -

„Þetta var frekar skrítinn leikur. Það var mikið af mörkum og skrítið tempó í þessu,“ sagði Sigvaldi Björn Guðjónsson, hægri hornamaður Íslands, í samtali við handbolta.is eftir 33:35 tap fyrir Svíþjóð í vináttulandsleik á Hlíðarenda í kvöld.

„Við náðum einhvern veginn aldrei að finna vörnina okkar en það eru fullt af góðum hlutum sem er hægt að taka með sér og fullt af hlutum sem við getum gert betur. Við erum að tapa svolítið í maður á mann. En það er annar leikur á laugardaginn,“ hélt Sigvaldi Björn áfram.

Tveggja marka tap fyrir Svíum á Hlíðarenda


Síðari vináttulandsleikur liðanna fer fram á laugardaginn klukkan 17 í Kaplakrika og því hægt að ná fram hefndum sem fyrst.

„Já, það er alltaf gaman að því og alltaf gaman að spila hérna heima við topplið, heimsklassa lið Svíþjóðar. Tveggja marka munur, það er margt sem við getum gert betur en það er gaman að fá að spila aftur á heimavelli á laugardaginn,“ sagði hann.

Gott að vera mættur aftur

Sigvaldi Björn var ekki valinn í lokahóp Íslands fyrir EM 2026 en var svo kallaður inn fyrir undanúrslitahelgina í Herning í Danmörku, án þess þó að koma við sögu í leikjunum tveimur.


„Það er bara geggjað, það er alltaf gaman að vera partur af þessum hóp. Það er ógeðslega gaman að hitta strákana aftur og ógeðslega leiðinlegt að missa af janúar en ég komst inn og fékk svona smá smjörþefinn af þessu. En það er gott að vera mættur aftur,“ sagði Sigvaldi Björn Guðjónsson í samtali við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -