- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Veit ekki nákvæmlega hvað gerðist

- Auglýsing -

Harpa María Friðgeirsdóttir, fyrirliði Fram, var að vonum svekkt eftir að liðið tapaði 32:29 fyrir Haukum í undanúrslitum Powerade bikars kvenna í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld. Leikurinn var jafn og spennandi lengi vel.

„Já, þetta var hörkuleikur. Ótrúlega skemmtilegur leikur og það var gaman að spila í „Final 4“ eins og alltaf. Það er ekkert sjálfsagt. Það er mjög svekkjandi að þetta hafi ekki endað okkar megin.“

Haukar leika til úrslita – unnu Fram í spennuleik

Eftir mikið jafnræði framan af tókst Haukum að komast fjórum mörkum yfir í stöðunni 24:20. Þrátt fyrir að Fram hafi nokkrum sinnum náð að minnka muninn niður í eitt mark komust þær ekki nær.

„Þetta var jafnt í fyrri hálfleik og svo svona um 42. eða 43. mínútu missum við þær 3-4 mörkum fram úr okkur. Þá erum við svolítið að elta.

Ég veit ekki nákvæmlega hvað það var sem gerðist en þær voru bara að skora á meðan við vorum ekki að skora,“ sagði Harpa María um hvað hafi farið úrskeiðis hjá Fram þegar Haukar slitu sig frá.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -