- Auglýsing -
Leikur Stjörnunnar og ÍBV í Olísdeild karla sem fram átti að fara í Hekluhöllinni í kvöld hefur verið frestað vegna breytingar á ferðum Herjólfs í dag. Mótanefnd hefur tilkynnt að leikurinn fari fram á morgun, föstudag. Flauta skal til leiks klukkan 18.
Á sama tíma annað kvöld mætast Haukar og KA á Ásvöllum.
Fjórir leikir verða háðir í Olísdeild karla í kvöld. Nánar um þá hér fyrir neðan.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
- Auglýsing -