- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Viðurkennir að verða enn taugaóstyrkur

- Auglýsing -

Danski markvörðurinn Emil Nielsen, einn sá allra besti í sinni stöðu í heiminum, viðurkennir að hann finni enn reglulega fyrir stressi þegar hann spilar.

Það kann að koma einhverjum á óvart því oft virðist sem það að verja skot á ögurstundu, þegar Nielsen á hvern stórleikinn á fætur öðrum með danska landsliðinu og spænska stórliðinu Barcelona, gæti vart verið auðveldara fyrir hann.

Krísa hjá Barcelona ef liðið vinnur ekki

Hjá báðum liðum eru gerðar kröfur um að vinna hvern einasta leik og fer Nielsen ekki varhluta af því.

„Þetta er umhverfi sem ég er vanur að vera í. Í Barcelona er eins og það komi upp krísa ef þú vinnur ekki hvern einasta leik. Sem betur fer verð ég ennþá stressaður.

Ég tel það vera brjálæðislega góðs viti. Þegar Evrópumótið hefst og við þurfum að spila fyrir framan margmenni í Herning mun ég án vafa verða taugaóstyrkur,“ sagði markvörðurinn öflugi í samtali við danska miðilinn Hbold.

Ef það var ekki nægilega mikil gulrót

Danmörk er ríkjandi Ólympíu- og heimsmeistari en vann síðast Evrópumótið árið 2012. Danir eru taldir sigurstranglegastir á Evrópumótinu í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, sem hefst um miðjan mánuðinn enda liðið stórkostlega mannað og hefur orðið heimsmeistari fjórum sinnum í röð.


Nielsen er spenntur fyrir þeim möguleika að spila Evrópumótið á heimavelli.

„Ef gullið var ekki nægilega mikil gulrót í sjálfu sér þá er sá möguleiki enn meiri gulrót að leika á heimavelli,“ sagði hann, en auk þess að leika í B-riðli í Herning í Danmörku munu tvö efstu lið hans fara áfram í milliriðil sem einnig verður leikinn þar í bæ. Átta liða úrslit úr Danmerkurhluta mótsins verða einnig leikin í Herning, auka undanúrslita og úrslitaleikjanna.

EM2026 – fréttasíða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -