- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Vigdís Arna verður áfram með Stjörnunni

Vigdís Arna Hjartardóttir hægri hornakona Stjörnunnar. Ljósmynd/Stjarnan
- Auglýsing -


Vigdís Arna Hjartardóttir hægri hornakona Stjörnuliðsins í Olísdeild kvenna hefur framlengt samning sinn við Garðabæjarliðið. Vigdís Arna lék upp yngri flokka Stjörnunnar og er nú orðin ein af mikilvægustu leikmönnum liðsins.
Þess má geta að Vigdís Arna var aðeins 13 ára og 9 mánaða gömul þegar hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik og er þar af leiðandi ein sú yngsta sem leikið hefur í efstu deild kvenna hér á landi.


„Hún er einn efnilegasti hægri hornamaður í íslenskum kvenna handbolta í dag. Vigdís Arna hefur spilað upp alla yngri flokka í Stjörnunni og er mikilvægur hlekkur í meistaraflokksliðinu í dag. Hlakka til að vinna með henni áfram og hef mikla trú á henni,“ segir Patrekur Jóhannesson, þjálfari meistaraflokks Stjörnunnar í tilkynningu deildarinnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -