Viggó Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik er orðaður við þýska handknattleiksliðið Flensburg á samfélagsmiðlum í dag. Hermt er að samningaviðræður standi yfir með það í huga að Viggó gangi til liðs við félagið sumarið 2027. Flensburg er um þessar mundir í öðru sæti þýsku 1. deildarinnar, næsta á eftir SC Magdeburg.
HC Erlangen keypti Viggó frá Leipzig í árslok 2024. Um leið samdi hann við félagið til loka leiktíðar vorið 2027. Viggó hefur verið burðarás Erlangen-liðsins síðan. Hann fór á kostum síðasta sunnudag og skoraði 16 mörk í 19 skotum í sigri á GWD Minden, 36:31, á heimavelli.
🚨🇮🇸 EXCLUSIVE: Viggo Kristjansson to SG Flensburg-Handewitt?
— Hen Livgot (@Hen_Livgot) March 10, 2026
Advanced talks underway for a deal starting summer 2027. According to sources, negotiations progressing and agreement close between parties.
© @rygtebors
© @HBMRKT – Handball Transfermarkt
© @livgot – Hen Livgot pic.twitter.com/lnXV3Mcmlt



